Leita Trausta í Norðlingaholti

Trausti Þórðarson.
Trausti Þórðarson.

Leit stendur nú yfir að Trausta Þórðarsyni í Norðlingaholti. Lögreglan lýstir fyrst eftir Trausta síðdegis í dag en hann er 84 ára og er bú­sett­ur í Hafnar­f­irði. Síðast er vitað um ferðir Trausta um kl. 11 í morg­un en hann var þá stadd­ur í Ármúla í Reykja­vík.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru björgunarsveitir nú við leit að manninum í Norðlingaholti í Reykjavík en sími Trausta kom inn á sendi við Króka­vað í Reykja­vík um há­degi í dag.

Trausti er á bif­reiðinni UXF-34 sem er rauður Nis­s­an Qashqai.

Lög­regla ósk­ar eft­ir að ef fólk hef­ur orðið vart við ferðir Trausta eða séð til bif­reiðar hans hafi það sam­band við lög­reglu í síma 444-1000.

Trausti ófundinn

Leitað að manni á níræðisaldri

Bifreið af sömu gerð og Trausti hefur verið á.
Bifreið af sömu gerð og Trausti hefur verið á.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert