Ekkert flogið innanlands

Flugvél frá flugfélaginu Erni í flugtaki
Flugvél frá flugfélaginu Erni í flugtaki mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Ekkert hefur verið flogið innanlands frá því fyrir hádegi í gær en innanlandsflug Flugfélag Íslands og flugfélagsins Ernis er á athugun klukkan 10:15.

Kanna á með flug til og frá Gjögri hjá Erni klukkan 12 en annað flug er til athugunar klukkan 10:15.

Talsverð röskun hefur orðið á millilandaflugi í morgun en flugvélar sem áttu að fara snemma í morgun eru flestar annað hvort farnar af stað eða eru að fara frá landinu. Ljóst er að einhver seinkun verður á millilandaflugi eitthvað frameftir degi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert