Holtavörðuheiði lokuð og víða óveður

Morgunblaðið/Helgi Bjarnason

Það er hálka og skafrenningur á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum en hálka og éljagangur á Reykjanesbraut. Hálka er á flestum leiðum á Suðurlandi.

Holtavörðuheiðin er lokuð allri umferð og Brattabrekka er ófær. 

Óveður og snjóþekja er víða á Snæfellsnesi en ófært er á Fróðárheiði og Vatnaleið með stórhríð en þæfingsfærð í Heydal annars er hálka eða snjóþekja á Vesturlandi.

Á Vestfjörðum er ófært og óveður á Þröskuldum en þar er einnig allur akstur bannaður. Ófært er á Klefaheiði en snjóþekja í mikladal en þæfingsfærð á Hálfdáni, og Steingrímsfjarðarheiði, einnig á sunnanverðum Vestfjörðum. Þungfært og snjókoma er á Klettshálsi. Annars staðar er snjóþekja eða hálka, en unnið er að hreinsun.

Allur akstur bannaður á Vatnsskarði og á Þverárfjalli

Lokað og allur akstur bannaður á Vatnsskarði og á Þverárfjalli. það er snjóþekja og snjókoma á flestum leiðum í Húnavatnssýlsum. Flug hálka með stórhríð er frá Sauðárkróki að Hofsósi og í Ketilás. Þæfingsfærð með skafrenningi er á Öxnadalsheiði. Hálka og éljagangur er á Víkurskarði.

Þæfingsfærð er á Hólasandi og Mývatnsöræfum að Biskupshálsi og á Jökuldal en ennþá er ófært á Möðrudalsöræfum en unnið að mokstri.

Flughálka er á Fagradal, Fjarðarheiði og frá Breiðdalsvík að Fáskrúðsfirði en hálka á Oddskarði. Snjóþekja eða hálka á velflestum vegum á Austur- og Suðausturlandi. Frá Kirkjubæjarklaustri að Vík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert