Leit að Þorleifi hætt fram á morgun

Þorleifur Kristínarson er tvítugur að aldri.
Þorleifur Kristínarson er tvítugur að aldri. Skjáskot af nordjyske.dk

Leit lögreglu að Þorleifi Kristínarsyni hefur verið hætt í dag. Talið er að Þorleifur hafi farið yfir öryggishlið við höfnina í Fredrikshavn í Danmörku snemma morguns síðastliðinn laugardag.  

Í dag hefur því verið leitað í og við höfnina en þar sem orðið er dimmt hefur frekari leit verið frestað til morguns.

Þorleifur er tvítugur og búsettur í bæn­um Nykøbing Mors. Hann var í heim­sókn hjá vin­um sín­um í Frederiks­havn á Norður-Jótlandi um helg­ina þegar hann hvarf.

Íslendingurinn talinn látinn

Leitað að Íslendingi í Danmörku

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert