Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann undir kvöld í gær fyrir þjófnað í stórmarkaði. Hafði hann stolið vörum fyrir rúmlega 20 þúsund krónur. Málið afgreitt með skýrslutöku á lögreglustöð og var hann síðan látinn laus.
Á fjórða tímanum fékk lögreglan síðan tilkynningu um innbrot í fyrirtæki en ekki er vitað nánar hverju var stolið.