Leggja sig í mikla hættu við björgunarstörf

Þyrluskíðaferðir upp á Tröllaskaga eru vinsælar.
Þyrluskíðaferðir upp á Tröllaskaga eru vinsælar. Ljósmynd/Eleven Experience

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar skorar á ríkisvaldið og Slysavarnafélagið Landsbjörg að taka björgunarmál á Íslandi til gagngerrar endurskoðunar og endurskipulagningar sem miða að því að stórbæta möguleika björgunarsveita til að sinna hlutverki sínu við þær breyttu aðstæður sem eru uppi.

Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar 16. desember. Í henni segir að fjöldi ferðamanna til Íslands eykst ár frá ári og áhugi Íslendinga á fjölbreyttri fjallamennsku hafi jafnframt aukist á undanförnum árum. „Þessar aðstæður hafa aukið álag björgunarsveitafólks sem oft og tíðum þarf að leggja sig í mikla hættu við björgunarstörf. Kröfur um kostnaðarsama menntun björgunarfólks og kröfur um bættan tækjabúnað hafa einnig aukist. Í mörgum þeirra landa sem við Íslendingar berum okkur saman við eru það herflokkar og heimavarnalið sem sinna björgunarstörfum. Björgunarsveitir á Íslandi eru byggðar upp með sjálfboðastarfi og njóta velvilja almennings og fyrirtækja en fleira þarf að koma til.“

Þá segir að þrátt fyrir að jákvætt sé að náttúruperlur eins og fjöllin í Dalvíkurbyggð hafi mikið aðdráttarafl sé neikvæða að slysatíðni aukist í takt við aukinn fjölda fólks sem stundar fjallamennsku. „Alvarleg slys hafa orðið á Tröllaskaga á undanförnum misserum og í ljós hefur komið í því sambandi að verkferlar við björgunarstörf hafa bæði verið óskýrir og þunglamalegir vegna flókinna reglna og tryggingamála.

Mikil umræða hefur verið um að tryggja fjármagn til verndunar ferðamannastaða vegna aukins ágangs á slíka staði. Að sama skapi þarf að huga að því að björgunarsveitum sé tryggt öruggt rekstrarumhverfi til að rækja hlutverk sitt. Tryggja þarf björgunarsveitum nægilegt fjármagn og að reglur og verkferlar séu skýrir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert