Ný plata snemma á næsta ári

Of Monsters and Men
Of Monsters and Men mbl.is/Styrmir Kári

Hljómsveitin Of Monsters and Men hyggst gefa út sína aðra plötu snemma á næsta ári.

Lítið hefur farið fyrir hljómsveitinni síðan hún lauk við tónleikaferð í ágúst á síðasta ári en upptökur á nýju plötunni hófust í mars.

Platan er unnin með bandaríska framleiðandanum Rich Costey, sem er vel þekktur í tónlistarbransanum í Los Angeles, að því er fram kemur í umfjöllun um hljómsveitina og nýju plötuna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert