Finndu þinn innri jólasvein

Jólasveinarnir eru tíu í jólaprófi mbl.is. Hver þeirra ert þú?
Jólasveinarnir eru tíu í jólaprófi mbl.is. Hver þeirra ert þú? Helgi Snær Sigurðsson.

Jólin nálgast óðfluga og margir bíða í ofvæni eftir því að klukkan slái sex á aðfangadagskvöld. Ein leið til að stytta biðina er að komast að því hvaða jólasveinn eða jólamær maður er, en mbl.is hefur útbúið sérstakt jólasveinapróf sem mun vísa veginn eins og Betlehemsstjarnan.

Jólasveinarnir þrettán hafa frá því elstu menn muna verið hluti af jólahaldi Íslendinga. Fáir vita þó af tilvist margra bræðra og systra þeirra. Meðal þeirra má nefna Bagga, Bandaleysu, Faldafeyki og Lungnasletti. Já, Lungnasletti. Nafnið lýsir nákvæmlega því sem hann gerir.

Taktu prófið hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert