Innbrot og skemmdarverk

mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Brotist var inn á heimili í austurbænum í nótt en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um málið á þriðja tímanum í nótt. Ekki er vitað hverju var nákvæmlega stolið né heldur hefur innbrotsþjófurinn fundist.

Á sama tíma var tilkynnt um skemmdarverk á bifreiðum í austurbænum. Ekki er vitað hver skemmdarvargurinn er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert