Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot á heimili í Seljahverfi í Breiðholti um hádegisbil í dag. Þar vaknaði húsráðandi við að ókunnugur maður væri kominn inn í húsið.
Lögreglan segir óboðni gesturinn hafi forðað sér út um leið og hann varð var við húsráðandann.
Málið er í rannsókn að sögn lögreglu.