Stuðningsfólk VG borðar frekar rjúpur

Stuðningsfólk Vinstri-grænna borða frekar rjúpur sem aðalrétt á aðfangadag en stuðningsfólk annarra stjórnamálaflokka. Lambakjöt nýtur mestra vinsælda sem aðalréttur á aðfangadag meðal stuðningsfólks Framsóknarflokksins og þeir sem tilheyra aldurshópnum 50-67 ára borða síður hamborgarhrygg á aðfangadagskvöld en aðrir hópar.

MMR kannaði hvað fólk ætlaði að borða í aðalrétt á aðfangadag á þessari jólahátíð. Hamborgarahryggur virðist vera fastur liður á aðfangadagskvöldi hjá um helming Íslendinga. Aðrir algengir aðalréttir á aðfangadag hjá Íslendingum eru Lambakjöt (annað en hangikjöt), rjúpur og kalkúnn. 

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 50,4% ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag, 10,7% sögðust ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt), 8,7% sögðust ætla að borða rjúpur, 8,5% sögðust ætla að borða kalkún, 4,5% sögðust ætla að borða svínakjöt (annað en hamborgarhrygg) og 17,2% sögðust ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti

Þeir sem tilheyrðu aldurshópnum 50-67 ára borða síður hamborgarhrygg á aðfangadagskvöld en aðrir hópar. Þeir sem tilheyrðu aldurshópnum 50-67 ára voru hinsvegar líklegri til að borða lambakjöt á aðfangadag en aðrir. Af þeim sem tóku afstöðu og voru á aldrinum 50-67 ára sögðust 43,0% ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag og 15,0% sögðust ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt). Til samanburðar sögðust 57,0% þeirra sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára) ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag og 7,1% sögðust ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt).

Íbúar á landsbyggðinni borða frekar lambakjöt á aðfangadag (14,4%) en íbúar höfuðborgarsvæðisins (8,4%). Íbúar á höfuðborgarsvæðinu er aftur á móti líklegri til að kjósa kalkún á sinn disk á aðfangadag (10,9%) heldur en íbúar á landsbyggðinni (4,7%).

Lambakjöt nýtur meiri vinsælda sem aðalréttur á aðfangadag meðal stuðningsfólks Framsóknarflokksins en stuðningsfólks annarra flokka. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Framsóknarflokkinn sögðust 27,8% ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt) sem aðalrétt að aðfangadag, borið saman við 7,4% Pírata.

Stuðningsfólk Vinstri-grænna sögðust frekar ætla að borða rjúpur sem aðalrétt á aðfangadag en stuðningsfólk annarra flokka. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Vinstri-græn sögðust 14,8% ætla að borða rjúpur á aðfangadag, borið saman við 3,9% Pírata

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert