Árekstur á Miklubraut

Sjúkrabíll. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Sjúkrabíll. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Tveggja bíla árekstur varð nú fyrir skömmu á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Einhver slys munu hafa orðið á fólki en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er ekki ljóst hversu mikil.

Þrír sjúkrabílar og einn dælubíll frá slökkviliðinu voru sendir á staðinn. Annar bíllinn sem lenti í árekstrinum mun hafa endað utan vegar, uppi á handriði við götuna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert