750 nýjar stúdentaíbúðir

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirritaði viljayfirlýsinguna fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Guðrún …
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirritaði viljayfirlýsinguna fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Guðrún Björnsdóttir fyrir hönd Félagsstofnunar stúdenta og Kristín Ingólfsdóttir rektor fyrir hönd Háskóla Íslands.

650 nýjar stúdentaíbúðir munu rísa á háskólasvæðinu og í nágrenni við Háskóla Íslands á næstu fimm árum, auk þeirra 100 sem eru að fara í uppbyggingu við Ásholt/Brautarholt. Viljayfirlýsing um bygginguna var undirrituð í dag af Reykjavíkurborg, Félagsstofnun stúdenta og Háskóla Íslands.

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að Háskóli Íslands og Reykjavíkurborg muni vinna að því að skipuleggja háskólasvæðið með það að markmiði að koma þar fyrir allt að 400 stúdentaíbúðum til viðbótar við þær sem þegar eru á svæðinu.

Þá lýsir Reykjavíkurborg yfir vilja sínum til að úthluta lóðum og byggingarrétti fyrir 250 stúdentaíbúðir á vegum Félagsstofnunar stúdenta á öðrum þéttingarreitum nálægt miðborginni og Háskóla Íslands. Er þar m.a. tiltekið að Félagsstofnun stúdenta muni taka þátt í samstarfi um byggingu nýrra Reykjavíkurhúsa í Vesturbugt og á öðrum reitum samkvæmt nánara samkomulagi, hvort heldur sem er við Reykjavíkurborg eða í gegnum opinbera einkaframkvæmd. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Við Ásholt/Brautarholt hefur þegar verið úthlutað lóð fyrir um 100 nýjar stúdentaíbúðir en framkvæmdir munu hefjast á nýju ári.

Alls verða því 750 nýjar stúdentaíbúðir byggðar í Reykjavík á næstu fimm árum á vegum Félagsstofnunar stúdenta en aðrir aðilar, eins og Háskólinn í Reykjavík og Byggingafélag námsmanna, hafa einnig áform um byggingu stúdentaíbúða.

Félagsbústaðir hf. munu samkvæmt viljayfirlýsingunni hafa kauprétt á allt að 5% íbúða sem byggðar verða enda sé um að ræða íbúðir fyrir námsmenn sem stunda nám við Háskóla Íslands.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirritaði viljayfirlýsinguna fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Guðrún Björnsdóttir fyrir hönd Félagsstofnunar stúdenta og Kristín Ingólfsdóttir rektor fyrir hönd Háskóla Íslands.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri við undirritun viljayfirlýsingarinnar í dag.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri við undirritun viljayfirlýsingarinnar í dag.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert