Opin á jóladag vegna einnar flugferðar

Fámennt verður í Leifsstöð á jóladag.
Fámennt verður í Leifsstöð á jóladag. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Yfirleitt liggja allar flugsamgöngur til og frá landinu niðri á jóladag, en í ár verður Flugstöð Leifs Eiríkssonar opin á jóladag.

Þar mun ein vél koma við, hún er á vegum breska flugfélagsins easyJet og kemur frá Genf í Sviss. Vélin mun lenda í Keflavík um kl. 16 og fara aftur um kl. 17.

Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is. Þar segir að vegna þessa þurfi að ræsa út starfsfólk flugvallarins og að sögn Isavia sé ætlast til þess að verslanir séu opnar við allar brottfarir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert