Varað við snjóflóðahættu

Snjóflóðið sem féll á veginn um Ólafsfjarðarmúla fyrr í vetur
Snjóflóðið sem féll á veginn um Ólafsfjarðarmúla fyrr í vetur Myndina tók Árni Þorvaldsson og er hún birt á vef Veðurstofunnar

Varað er við snjóflóðahættu á Ólafsfjarðarmúla, Siglufjarðarvegi og Súðavíkurhlíð. Vegirnir  um Súðavíkurhlíð og Siglufjarðarveg eru lokaðir.

Á Hellisheiði, Þrengslum og Sandskeiði er hálka. Það er hálka og snjóþekja á Suðurlandi en hálkublettir og hálka á Suðvesturlandi. Flughált er í Grafningnum.

Á Vesturlandi er hálka og snjóþekja á flestum vegum. Þungfært er í Svínadal og Bröttubrekku. Þæfingur er á Holtavörðuheiði. Ófært er á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er ófært á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Þæfingur er á Gemlufallsheiði og Klettshálsi. Flughált er á Barðaströnd og í vestanverðum Hrútafirði.

Snjóþekja og hálka er á Norðurlandi og víða þæfingur. Þæfingur er frá Hrútafirði í Blönduós. Ófært er á Þverárfjalli og Siglufjarðarheiði. Ófært er á Öxnadalsheiði. Skafrenningur og þæfingsfærð er á Mývatnsöræfum.

Hálka er á Austurlandi og sumstaðar skafrenningur. Snjókoma og þæfingsfærð er á Möðrudalsöræfum. Snjóþekja er á Fagradal, Fjarðarheiði og á Oddsskarði og líka með ströndinni í Djúpavog.

Á Suðausturlandi er hálka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert