Ekki hefur verið tilkynnt um áberandi mörg slys á fólki síðustu daga tengd hálku. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítalans hafa svokölluð hálkuslys ekki verið mörg í dag eða í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er flughált á mörgum stöðum á landsbyggðinni en einnig á höfuðborgarsvæðinu. Má því gera ráð fyrir því að fólk sé almennt að vara sig á hálkunni og þurfi að gera það eitthvað áfram.