Verðlaunaður fyrir afburða árangur

Ingimar Jóhannsson tekur við viðurkenningunni.
Ingimar Jóhannsson tekur við viðurkenningunni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ingimar Jóhannsson, BS-nemi í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið viðurkenningu úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti styrkinn við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi sunnudaginn 21. desember samkvæmt fréttatilkynningu frá Háskóla Íslands.

„Tilgangur Minningarsjóðs Þorvalds Finnbogasonar stúdents er að styrkja efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í verkfræði. Nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni. Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952,“ segir ennfremur.

Þá segir að Ingimar hafi hafið BS-nám í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands haustið 2012. Hann er sonur Sólveigar Jónu Ólafsdóttur og Jóhanns Þorvarðar Ingimarssonar, sem eru búsett á Eyrarlandi í Fljótsdal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert