Annríki hjá slökkviliðinu

Sjúkrabíll.
Sjúkrabíll.

Mikið annríki hefur verið hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í kvöld en alls hafa slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu farið í á annan tug sjúkraflutninga síðan tæplega átta í kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er um alls konar veikindi að ræða og bráðaflutninga en eins hefur verið farið í eitt útkall á slökkviliðsbíl. Um var að ræða bensínleka frá bifreið á Hverfisgötunni en greiðlega gekk að hreinsa eldsneytið upp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert