Það gott veður um allt land og ágætis færð á helstu leiðum. Það er spáð norðlægri átt í kvöld og frost um allt land.
Það er greiðfært á Reykjanesbraut og frá Reykjavík og í Borgarnes. Hálkublettir eru á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum en annars er hálka mjög víða á Suður- og Vesturlandi. Flughálka er á Útnesvegi.
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Vestfjörðum og éljagangur í Ísafjarðardjúpi. Snjóþekja og skafrenningur er í Súgandafirði. Þungfært er frá Bjarnarfirði og norður að Gjögri.
Á Norður- og Austurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum. Hálka eða hálkublettir eru með suðausturströndinni.
Veðurspá fyrir næsta sólarhring:
Norðlæg eða breytileg átt í kvöld, víða 3-8 m/s. Él norðantil, einkum við ströndina, annars bjartviðri. Frost 1 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Sunnan 5-13 og snjókoma eða él V-til á morgun, hægari og úrkomulítið eystra.