Innanlandsflug gengur vel

Allt innanlandsflug, til og frá Reykjavíkurflugvelli, hefur verið á tíma í dag. Samkvæmt starfsmanni Reykjavíkurflugvallar hefur tímaáætlun gengið upp í morgun og líklega mun það halda áfram í dag.

Nokkuð mikill erill er á flugvellinum í dag en óhætt er að segja að margir séu á leið til ættingja og vina til þess að halda upp á jól. Allt hefur gengið vel í dag að sögn starfsmanns flugvallarins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert