Kviknaði í þurrkofni

Miklar skemmdir eru í eldhúsinu.
Miklar skemmdir eru í eldhúsinu. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Eldur sem varð á bóndabænum Bjargi í Eyjafjarðarsveit varð í íbúð í kjallara hússins. Þrír voru fluttir á Sjúkrahús Akureyrar með reykeitrun. Ein kona liggur nú á gjörgæslu. Samkvæmt heimildum mbl.is er talið að eldurinn hafi kviknað í eldhúsi, sennilega í þurrkofni.

Eins og má sjá á þessum myndum er eldhúsið mikið skemmt. Samkvæmt heimildum mbl.is var fólkið sem flutt var til aðhlynningar hjón og móðir konunnar. Hjónin höfðu komið í Eyjafjarðarsveit til þess að halda upp á jólin. 

Á gjörgæslu eftir bruna

Gekk berfættur til að fá aðstoð

Hér má sjá ummerki um eldinn utan á húsinu.
Hér má sjá ummerki um eldinn utan á húsinu. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert