Nokkur hálkuslys í gær og nótt

mbl.is/Hjörtur

Hálkuslys voru nokkuð áberandi á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu voru nítján sjúkraflutningum sinnt. Höfðu flestir dottið í hálku og þurft aðhlynningu í kjölfarið. 

Að sögn varðstjóra var þó ekki meira að gera í nótt og í gærkvöldi heldur en vanalega í færð sem þessari. Mikil hálka og snjór er nú á höfuðborgarsvæðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert