Réðst á sambýliskonu sína

Fertugur karlmaður var handtekinn í heimahúsi á tólfta tímanum í gærkvöldi eftir líkamsárás. Var maðurinn vistaður í fangageymslu.  Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn verulega ölvaður. Sambýliskona mannsins varð fyrir árásinni og var hún flutt á slysadeild með sjúkrabifreið.  Ekki eru upplýsingar um meiðsl konunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert