Ökumaður sem velti bíl sínum á Kringlumýrarbraut um kl. 1 í nótt slapp ótrúlega vel.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um bílveltu á Kringlumýrarbraut við N1 Fossvogi laust eftir kl. 1 í nótt.
Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni og lítið eða ekkert slasaður.
Sjúkrabifreið kom á vettvang og starfsmenn Orkuveitu þar sem bifreiðin hafði farið utan í og skemmt ljósastaur. Bíllinn var fluttur af vettvangi með Króki.