Hált á Hellisheiði og í Þrengslum

Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum. Greiðfært er á Reykjanesbraut. Hálkublettir eru frá Reykjavík að Borgarnesi. Snjóþekja er á Mosfells- og Lyngdalsheiði en þæfingsfærð er í Grafningnum. Snjóþekja er víða í uppsveitum Árnessýslu.

Hálka og éljagangur er á velflestum vegum á Vesturlandi.

Á Vestfjörðum er snjóþekja eða hálka á flestum vegum og sumstaðar él eða snjókoma.

Á Norðurlandi er víða hálka eða snjóþekja með éljagangi.

Á Norðausturlandi er Hálka á flestum vegum.

Hálka er á flestum vegum á Austur- og Suðausturlandi en unnið er að hreinsun

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert