Höfnuðu þrisvar utan vegar

Bíllinn hafnaði þrisvar utan vegar.
Bíllinn hafnaði þrisvar utan vegar. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Erlendir ferðamenn áttu í töluverðum erfiðleikum með að komast frá Egilsstöðum til Akureyrar í gær.

Þeir óku sem leið lá á bílaleigubíl en höfnuðu þrisvar sinnum utan vegar. Í eitt skipti fór bifreiðin á hliðina en ferðamennirnir sluppu ómeiddir.

Að sögn lögreglu á Egilsstöðum héldu ferðamennirnir ótrauðir áfram þrátt fyrir óhöppin en eftir það þriðja óku þeir afar hægt.

Góð dekk voru á bifreiðinni en ökumaðurinn ekki vanur akstri í hálku og snjó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert