Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum og hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi. Þæfingsfærð er þó í Grafningi og á Þingskálavegi en þungfært efst á Skeiðavegi og Landvegi.
Það er hálka eða snjóþekja á velflestum vegum á Vesturlandi.
Á Vestfjörðum er þungfært á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum en mokstur stendur yfir. Þæfingur er á Kletthálsi en ófært á Kleifaheiði og mokstur stendur yfir annars er hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Vestfjörðum.
Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á velflestum vegum og snjókoma mjög víða. Ófært er á Hófaskarði og Hálsum og mokstur stendur yfir. Þæfingur og snjókoma er á Tjörnesi.
Á Austurlandi er þungfært á Vopnafjarðarheiði og þæfingur er á Möðrudalsöræfum og í Jökuldal annars er snjóþekja, hálka og éljagangur á flestum vegum á Austurlandi.
Á Suðausturlandi er hálka og skafrenningur.