Hálka í öllum landshlutum

Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum og hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi. Þæfingsfærð  er þó í Grafningi og á Þingskálavegi en þungfært efst á Skeiðavegi og Landvegi.

Það er hálka eða snjóþekja á velflestum vegum á Vesturlandi og einnig hálka eða snjóþekja á vegum á Vestfjörðum.

Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á velflestum vegum og snjókoma mjög víða. Ófært er á Hófaskarði og Hálsum en þungfært á Tjörnesi og  mokstur stendur yfir. Þæfingur er á Mývatnsöræfum.

Á Austurlandi er þungfært á Vopnafjarðarheiði og þæfingur mjög víða en mokstur stendur yfir.

Á Suðausturlandi er hálka og skafrenningur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert