Ófærð á Vestfjörðum

Þórður Arnar Þórðarson

Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum og hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi. Þæfingsfærð  er þó í Grafningi og á Þingskálavegi en þungfært efst á Skeiðavegi og Landvegi.

Það er hálka eða snjóþekja á velflestum vegum á Vesturlandi.

Á Vestfjörðum er þungfært á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum en mokstur stendur yfir. Þæfingur er á Kletthálsi en ófært á Kleifaheiði og mokstur stendur yfir annars er hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Vestfjörðum.

Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á velflestum vegum og snjókoma mjög víða. Ófært er á Hófaskarði og Hálsum og  mokstur stendur yfir. Þæfingur og snjókoma er á Tjörnesi.

Á Austurlandi er þungfært á Vopnafjarðarheiði og þæfingur er á Möðrudalsöræfum og í Jökuldal annars er snjóþekja, hálka og éljagangur á flestum vegum á Austurlandi.

Á Suðausturlandi er hálka og skafrenningur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert