Þeystust niður skíðabrekkuna

Greina mátti bros á andlitum þeirra sem nýttu sér skíðabrekkuna í Breiðholti í dag. Fólk á öllum aldri renndi sér niður brekkuna, ýmist á skíðum, snjóbretti, stýrisleðum eða snjóþotum.

Allar lyfturnar í brekkunni verða opnar aftur á morgun, frá klukkan 10 til 16, og á mánudag og þriðjudag frá klukkan 16 til 20.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert