Þjófur náði að flýja

Öryggisvörður í verslun í miðborginni stóð mann að hnupli á öðrum tímanum í nótt. Þegar öryggisvörðurinn ætlaði að stöðva manninn lenti hann í átökum við þjófinn sem náði að flýja af vettvangi.

Á fjórða tímanum í nótt var maður handtekinn við veitingahús í Austurstræti grunaður um líkamsárás en hann hafði skallað annan mann í andlitið. Árásarmaðurinn gistir fangaklefa vegna rannsókn málsins. 

Á þriðja tímanum stöðvaði lögreglan síðan för drukkins ökumanns í miðborginni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert