Þungfært sums staðar á landinu

mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálka eða snjóþekja er einnig á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi. Þæfingsfærð er þó í Grafningi, Kjósarskarði og á Þingskálavegi en þungfært efst á Skeiðavegi og Landvegi.

Hálka eða snjóþekja er sömuleiðis á velflestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum en þungfært á Fróðárheiði. Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum og éljagangur mjög víða. Þungfært er á Hólasandi. Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austur- og Suðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert