Færri Íslendingar til Berlínar

AFP

Fyrstu tíu mánuði ársins bókuðu íslenskir ferðamenn fimmtungi færri hótelnætur í Berlín en á sama tíma í fyrra. Á næsta ári eykst samkeppni í flugi héðan til höfuðborgar Þýskalands.

Í fyrra var í fyrsta skipti boðið upp á beint flug héðan til Berlínar allt árið um kring. Íslenskir ferðamenn tóku greinilega nýbreytninni fagnandi því gistinætur Íslendinga í Berlín voru 41 prósent fleiri á síðasta ári en þær voru 2012, samkvæmt frétt Túrista.

Í ár hefur dregið nokkuð úr ferðum Íslendinga til Berlínar því samkvæmt nýjum tölum frá ferðamálaráði borgarinnar bókuðu íslenskir ferðamenn fimmtungi færri gistinætur í Berlín fyrstu tíu mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra. Voru gistinæturnar 22.561 í janúar til október í ár en 27.917 á sama tíma í fyrra. Almennt hefur hótelgestum í borginni fjölgað um 5,9 prósent og utanferðir Íslendinga eru einnig tíðari nú en í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert