Fært um Öxnadalsheiði

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hálkublettir eru á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi. Þæfingsfærð er á Þingskálavegi en þungfært efst á Skeiðavegi og Landvegi. Flughált er á Suðurstrandavegi.

Ófært er á milli Stykkishólmar og Grundafjarðar á Snæfellsnesi en flughálka með ströndinni í Búðadal, á Fróðarheiði og Útnesvegi. Hálka eða snjóþekja er víða á vegum á Vesturlandi. Flughálka er á Vestfjörðum. Snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði og á Þröskuldum. Hálka á Kleifaheiði, Mikladal og á Hálfdán.

Norðvestanlands er flughált frá Blönduósi og inn Langadal og frá Sauðárkróki í Ketilás annars er hálka eða snjóþekja á vel flestum leiðum. Þæfingur er á Öxnadalsheiði. Á Norðausturlandi er þæfingur á Grenivíkurvegi en þungfært og óveður er frá Þelamörk út að Hjalteyri. Þungfært er á Hólasandi annars er hálka eða snjóþekja á vel flestum vegum.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austur- og Suðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert