„Lúaleg tilraun“ fjármálaráðherra

Frá samningafundi lækna í Karphúsinu í gær.
Frá samningafundi lækna í Karphúsinu í gær. mbl.is/Þórður

Raddir íslenskra lækna segja að ummæli Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra í hádegisfréttum RÚV hafi verið „lúaleg tilraun til að afvegaleiða og spilla samningaviðræðum“.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem samtökin hafa sent frá sér.

Fram kemur, að læknar vilji koma því á framfæri varðandi ummæli fjármálaráðherra um birtingu krafna lækna að ríkissáttasemjari hafi ítrekað þau fyrirmæli sín á fundi í gær að samningsaðilar ættu ekki að tjá sig um kröfur eða tölur í fjölmiðlum og að slíkt hefði ekki jákvæð áhrif á samningsviðræður. 

„Minnum einnig á eftirfarandi: 

Samninganefnd lækna er ekki heimilt að ræða kröfur sínar eða tillögur SNR opinberlega skv. lögum um vinnudeilur en þar stendur í 25. gr.: 

  • Samningsaðilum er skylt að sækja eða láta sækja samningafund sem sáttasemjari kveður þá til.
  • Sáttafundi skal halda fyrir luktum dyrum.
  • Á sáttafundi skal leggja fram eftirrit þeirra skjala sem farið hafa milli aðila í deilunni, enda hafi þau ekki verið send ríkissáttasemjara áður.
  • Bannað er að skýra frá eða leiða vitni um umræður á sáttafundum og tillögur sem fram kunna að hafa verið bornar nema með samþykki beggja samningsaðila.

Læknar hafa virt þennan trúnað þó að fjármálaráðherra hafi kosið að gera það ekki,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert