Sigrún næsti umhverfis- og auðlindaráðherra

Eygló Harðardóttir og Sigrún Magnúsdóttir á fundi þingflokks Framsóknarflokksins í …
Eygló Harðardóttir og Sigrún Magnúsdóttir á fundi þingflokks Framsóknarflokksins í Alþingishúsinu síðdegis í dag. Morgunblaðið/Eggert

Þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti í dag tillögu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins og forsætisráðherra, um breytingar á ríkisstjórn Íslands.  Sigmundur mun á ríkisráðsfundi á morgun, gamlársdag, leggja til við forseta Íslands að Sigrún Magnúsdóttir, alþingismaður og núverandi formaður þingflokks framsóknarmanna, taki við embætti umhverfis- og auðlindaráðherra. Sigurður Ingi Jóhannsson hefur gegnt því embætti samhliða starfi sínu sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstoðarmanni forsætisráðherra, en fundi þingflokksins er ekki lokið. Þar segir eftirfarandi:

„Sigrún Magnúsdóttir er þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður. Hún á að baki farsælan feril í stjórnmálum auk þess að búa að víðtækri reynslu úr atvinnulífinu.  Sigrún hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir ríki og borg og sat í borgarstjórn Reykjavíkur í 16 ár, m.a. sem formaður borgarráðs í 6 ár og formaður borgarstjórnarhóps Reykjavíkurlistans frá 1994 til 2002. Hún hefur setið í stjórnum margra fyrirtækja og stofnana borgarinnar og leitt mikilvæg verkefni, t.d. á sviði mennta- og fræðslumála.  Sigrún var kjörin á þing vorið 2013 og  hefur setið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis og verið formaður Þingvallanefndar auk þess að gegna embætti þingflokksformanns. 

Sigrún Magnúsdóttir:

„Umhverfis- og auðlindamál eru mér hugleikin og ég hlakka til að takast á við þau verkefni sem bíða. Í mínum huga eru umhverfismálin mikilvæg fyrir framtíð lands og þjóðar, sér í lagi er varðar gróðurríki landsins og sjálfbæra nýtingu lífríkis hafs.“ 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson:

„Sigrún er reynslumikill, farsæll og heilsteyptur stjórnmálamaður sem nýtur trausts allra sem hún hefur unnið með á fjölbreyttum ferli. Sjónarmið og reynsla hennar vega þungt. Það verður mikill fengur í því að fá Sigrúnu Magnúsdóttur til liðs við ríkisstjórnina."“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert