Funda um helgina

mbl.is/Eggert

Fundi samninganefnda Læknafélags Íslands og samninganefndar ríkisins lauk klukkan sex í kvöld. Fulltrúar Skurðlæknafélags Íslands funda hinsvegar enn með samninganefnd ríkisins.

Fundað verður á ný í kjaradeilu lækna á morgun klukkan tvö og má gera ráð fyrir að þá verði jafnframt fundað í kjaradeilu Skurðlæknafélags Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert