Vetrarfærð er á landinu öllu

Vetrarfærð er um allt land.
Vetrarfærð er um allt land. mbl.is/Rax

Vetrarfærð er á öllu landinu, hálka og snjóþekja í fyrstu en unnið er að hreinsun víða. Spáð er suðvestan 8-13 m/s og él, en hægari austantil og þurrt að mestu. Hægari vindur í kvöld og úrkomulítið. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins, en sums staðar frostlaust við suðvesturströndina. 

Hálka er á höfuðborgarsvæðinu, en hálkublettir á Reykjanesbraut.  Snjóþekja er á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er víðast hvar á Suðurlandi.

Á Vesturlandi er Snjóþekja nánast á öllum leiðum.

Á Vestfjörðum er hálka í djúpinu, þæfingsfærð á Gemlufallsheiði og á Steingrímsfjarðarheiði en snjóþekja er á sunnanverðum Vestfjörðum.

Á Norðurlandi er hálka nánast á á öllum leiðum, en snjóþekja er á Öxnadalsheiði og Þæfingsfærð sem stendur í Norðurárdal.

Búast má við vaxandi suðaustan átt í nótt og í fyrramálið með snjókomu eða slyddu, fyrst suðvestantil. Talsverð slydda eða rigning sunnanlands á morgun. Suðaustan 15-23 síðdegis, hvassast suðvestantil. Hiti 2 til 8 stig sunnanlands, en hiti um frostmark fyrir norðan.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert