Tollstjóri fargar fölsuðum stólum

Hér má sjá hvernig stólunum var fargað.
Hér má sjá hvernig stólunum var fargað. Ljósmynd/ Tollstjóri

Tæplega 30 fölsuðum Eames-stólum var fargað í vikunni eftir að tollverðir höfðu stöðvað innflutning þeirra til landsins í nóvember síðastliðnum. Var rétthöfum tilkynnt um hugsanlegt brot gegn hugverkaréttindum að því er segir í tilkynningu frá Tollstjóra.

Stólarnir, 29 talsins, voru á vegum nokkurra einstaklinga og komu ýmist í póstsendingum, hraðsendingum eða sjósendingum frá Bretlandi og Kína. Viðkomandi og rétthafar komust að samkomulagi um förgun varningsins, sem fargað var undir eftirliti Tollstjóra.

„Eames-stólarnir eru ein frægasta stólahönnun í heimi en stólarnir voru hannaðir af þeim Charles og Ray Eames í kringum 1950 og urðu strax mjög vinsælir. Sem fyrr leggur Tollstjóri áherslu á víðtækt og traust samstarf við atvinnulífið, þar á meðal á eindregna vernd hugverka,“ segir í tilkynningu Tollstjóra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert