Ráðnir fréttastjórar á DV

Ritstjórnarskrifstofur DV verða fluttar í Kringluna.
Ritstjórnarskrifstofur DV verða fluttar í Kringluna. Árni Sæberg

Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson hafa verið ráðnir fréttastjórar á DV og DV.is. Báðir hafa þeir starfað í nokkur ár á blaðinu. Ritstjórnarskrifstofur DV flytja um helgina úr Tryggvagötu í Kringluna. Verða skrifstofurnar á 6. hæð í stóra turninum.

Í DV í dag kemur einnig fram að Jóhann Hauksson, sem gegnt hefur starfi fréttastjóra, mun hér eftir verða ritstjórnarfulltrúi. Þá hefur Haraldur Guðmundsson verið ráðinn blaðamaður á DV.

Í lok síðasta árs var Hallgrími Thorsteinssyni, ritstjóra DV, sagt upp störfum. Við starfinu tóku Kolbrún Bergþórsdóttir, sem áður starfaði á Morgunblaðinu, og Eggert Skúlason. Þá var Hörður Ægisson, áður blaðamaður á Morgunblaðinu, ráðinn viðskiptaritstjóri blaðsins. Á sama tíma var „nokkrum starfsmönnum DV sagt upp“, líkt og það var orðað í tilkynningu.

Enn fleiri breytingar hafa orðið á ritstjórn DV að undanförnu. Jón Bjarki Magnús­son lét í byrjun janúar af störf­um sem blaðamaður þar. Hann sagði á þeim tímamótum að Björn Ingi Hrafns­son, aðal­eig­andi og út­gef­andi DV, hefði gerst sek­ur um trúnaðarbrest gagn­vart sér. Nokkrum dögum fyrr sagði blaðamaðurinn Jó­hann Páll Jó­hanns­son starfi sínu lausu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert