Verði ekki refsað fyrir guðlast

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, mælti fyrir málinu.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, mælti fyrir málinu. mbl.is/Ómar

Tillaga biskups Íslands um að lýsa yfir stuðning við framkomið frumvarp á Alþingi um afnám fangelsisrefsinga fyrir tjáningu skoðana í almennum hegningarlögum, þar sem m.a. er að finna ákvæði um guðlast, var samþykkt á kirkjuþingi í dag.

Ályktun þingsins er svohljóðandi:

„Kirkjuþing 2014 styður framkomið frumvarp á Alþingi um afnám fangelsisrefsinga fyrir tjáningu skoðana í almennum hegningarlögum nr. 19/1940.“

Fram kemur í tilkynningu, að  Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, hafi mælt fyrir málinu.

Í greinargerð með málinu segir:

„Flokkur Pírata hefur nú lagt fram frumvarp á Alþingi sem kveður á um afnám fangelsisrefsinga fyrir tjáningu skoðana. Með frumvarpi Pírata er lagt til að að ákvæðum almennra hegningarlaga sem setja tjáningarfrelsi skorður verði breytt á þann veg að ekki verði heimilt að dæma menn til fangelsisrefsingar fyrir að tjá skoðanir sínar.  

Í greinargerð með frumvarpinu segir m.a. að lagt sé til að ákvæðum almennra hegningarlaga sem setja tjáningarfrelsinu skorður verði breytt á þann veg að ekki verði heimilt að dæma menn til fangelsisvistar fyrir að tjá skoðanir sínar. Í greinargerðinni kemur einnig fram að tjáningarfrelsið sé einn af mikilvægustu hornsteinum lýðræðis og frelsis. Það sé grundvallaratriði í frjálsu samfélagi að almenningur geti tjáð sig án ótta við refsingar af nokkru tagi, hvort heldur sem er af völdum yfirvalda eða annarra.

Í 125. gr. almennra hegningarlaga, er nú m.a lögð fangelsisrefsing við því að draga opinberlega dár að eða smána trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúfélags, sem er hér á landi.  Biskup tekur undir þá skoðun Pírata að lagaheimildir sem setja tjáningarfrelsinu skorður með þessum hætti standist ekki nútíma viðhorf til mannréttinda.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert