Lögðu hald á 500 kannabisplöntur

mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði á Seltjarnarnesi í gærkvöld. Við húsleit á staðnum var hald lagt á rúmlega 500 kannabisplöntur. Tveir menn, annar á fertugsaldri og hinn á fimmtugsaldri, voru handteknir í þágu rannsóknarinnar.

„Þess má geta að sl. haust, í óskyldu máli, stöðvaði lögreglan einnig kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði á Seltjarnarnesi. Um var að ræða annað hús, en við sömu götu og kannabisræktunin fannst í gærkvöld,“ segir í tilkynningu. Lögreglan vill minna á fíkniefnasímann 800-5005 þar sem hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert