Jóhannes Rúnarsson nýr framkvæmdastjóri Strætó

Jóhannes Rúnarsson.
Jóhannes Rúnarsson.

Jóhannes Rúnarsson, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Strætó.  Jóhannes hefur meðal annars unnið hjá Símanum og Skiptum. Undanfarið hálft ár hefur hann starfað sem sviðsstjóri rekstrarsviðs Stræó. Jóhannes hefur lokið prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, með áherslu á fjármál, og hefur auk þess sótt fjölmörg námskeið á sviði starfsmannamála, fjármála og innkaupamála. Jóhannes var valinn úr hópi 86 umsækjenda og hélt Capacent utan um ráðingarferlið fyrir stjórn Strætó bs.

„Það eru að eiga sér stað miklar breytingar á áherslum í samgöngumálum og samgönguvenjum og þar gegnir Strætó mikilvægu hlutverki,“ er haft eftir Jóhannesi í fréttatilkynningu. „Það er okkar hlutverk að fylgjast með og reyna að bregðast við þörfum og óskum almennings. Við munum því setja okkur metnaðarfull markmið um fjölgun farþega í samræmi við stefnu eigenda í nýju svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins."segir Jóhannes Rúnarsson nýr framkvæmdastjóri Strætó. „Ég mun  leggja áherslu á starfsandann innan fyrirtækisins með auknu samráði og samstarfi starfsfólk. Starfsfólkið er grunnurinn að árangri og velgengni fyrirtækisins.“

Jóhannes er giftur Lilju Bjarnsþórsdóttur sérkennara og búa þau í Kópavogi. Hann er virkur meðlimur í Hjálparsveit skáta í Kópavogi og er útivist hans helsta áhugamál.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert