Orðnir tugum milljónum ríkari

Þrír heppnir spilarar í Eurojackpot-lóttóinu hlutu annan vinnig í úrdrætti kvöldsins og fær hver og einn þeirra fyrir vikið rúmar 52 milljónir króna í sinn hlut. Vinningsmiðarnir voru allir keyptir í Þýskalandi.

Fjórir fengu þriðja vinning og fær hver og einn í sinn hlut rúmar 13,8 milljónir. Fyrsti vinningur kvöldsins gekk hins vegar ekki út en hann var engin smásmíði, eða samtals 3.354.996.820 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert