Sunna Rannveig Evrópumeistari

Sunna Rannveig Davíðsdóttir
Sunna Rannveig Davíðsdóttir Ljósmynd/Mjölnir

Sunna Rannveig Davíðsdóttir úr Mjölni vann fyrir stundu til gullverðlauna á Evrópumeistaramótinu í brasilísku Jiu-Jitsu sem fram fer í Portúgal en 22 Íslendingar taka þátt í mótinu.

Sunna sigraði í flokki blábeltinga undir 58kg, 30 ára og eldri. Þess má geta Sunna er núverandi Íslandsmeistari í BJJ í flokki -64kg. Sunna sigraði fjóra andstæðinga á leið sinni að gullinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert