Tóku Vínarköku af markaði

Vínarkökurnar sem um ræðir.
Vínarkökurnar sem um ræðir.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um að Myllan, í samráði við heilbrigðiseftirlitið, hafi tekið af markaði og innkallað frá neytendum Vínar súkkulaði-  og appelsínuköku vegna vanmerkts ofnæmis- og óþolsvalds.

  • Vöruheiti:  Vínar súkkulaði og appelsínukaka 
  • Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Myllan, Skeifunni 19
  • Auðkenni/skýringartexti: Varan inniheldur ómerktan ofnæmis-og óþolsvald, sojaafurð 
  • Laga- /reglugerðarákvæði: a)- og c) liðir 8. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum
  • Áætluð dreifing innanlands: Allar helstu matvöruverslanir á landinu.

 Vörurnar eru skaðlausar þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir sojaafurðum. Viðskiptavinum, sem hafa keypt hafa vöruna og eru viðkvæmir fyrir sojaafurðum, er bent á að hægt er að skila henni til Myllunnar, Skeifunni 19, milli 8 og 16 alla virka daga. Frekari upplýsingar fást hjá gæðastjóra Myllunnar í síma 510- 2306 eða á netfanginu: svandis@myllan.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert