Enn ófært á Fróðárheiði

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálka eða hálkublettir er víða á Reykjanesinu. Þæfingsfærð er í Kjósarskarði. Hálka eða snjóþekja er á Suðurlandi.

Hálka eða snjóþekja er Vesturlandi en þó er ófært á Fróðárheiði og þungfært er á milli Arnarstapa og Fróðárheiðar. Snjóþekja og snjókoma er á Holtavörðuheiði. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er á flestum leiðum á Vestfjörðum. Hálka og éljagangur er á Þröskuldum.

Á Norður- og Austurlandi er hálka eða hálkublettir. Hálka er með Suðaustursrtöndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert