Grænmetissulta ekki fyrir grænmetisætur

Grænmetissultan frá Kjarnafæði.
Grænmetissultan frá Kjarnafæði. Af Facebook-síðu Samtaka grænmetisæta

Samtök grænmetisæta gera athugasemdir við fréttir af grænmetissultu frá Kjarnafæði. Þau segjast fagna allri nýsköpun í framboði á grænmetisfæði en grænmetissultan umrædda henti þó ekki grænmetisætum þar sem hún inniheldur matarlím. Það er unnið úr dýrum.

Grænmetissulta hefur verið sett á markað sem valkostur við hefðbundinn þorramat og að gefnu tilefni vilja samtökin benda á að varan inniheldur matarlím. Umrædd vara hentar því ekki grænmetisætum og vegan þar sem matarlím (öðru nafni gelatín) er unnið úr sinum og beinum og öðrum líkamsleifum spendýra, að því er segir í tilkynningu frá samtökunum.

„Samtök grænmetisæta fagna allri nýsköpun sem snýr að auknu framboði grænmetisfæðis og það er mikið gleðiefni að meira að segja kjötframleiðendur séu farnir að huga að þessum hratt vaxandi hópi neytenda,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert