210 milljóna vinningur veltur á Liverpool

Oft var þörf en nú er nauðsyn fyrir íslenskan tippara …
Oft var þörf en nú er nauðsyn fyrir íslenskan tippara að Liverpool vinni sinn leik í ensku bikarkeppninni. AFP

Íslenskur tippari leggur nú allt traust sitt á Liverpool sem etur kappi við Bolton í ensku bikarkeppninni. Vinni þeir rauðklæddu verður tipparinn með alla þrettán leikina á enska getraunaseðlinum rétta og fær þá 210 milljón króna vinning í sinn hlut, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Nú er í gangi leikur Liverpool og Bolton í ensku bikarkeppninni og er leikurinn síðasti leikurinn á Enska getraunaseðlinum en 12 leikjum er lokið. Staðan er þannig að ef Liverpool vinnur leikinn verður einn íslenskur tippari með alla leikina 13 rétta og fær í sinn hlut um 210 milljónir króna. Endi leikurinn með jafntefli eða með sigri Bolton verður enginn tippari með 13 rétta og færist þá vinningsupphæðin yfir á Enska getraunaseðilinn í næstu viku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert