Missti af stærsta vinningi Íslandssögunnar

Liverpool-menn brugðust íslenskum tippara sem hefði verið 210 milljónum krónu …
Liverpool-menn brugðust íslenskum tippara sem hefði verið 210 milljónum krónu ríkari hefði liðið unnið Bolton í kvöld. AFP

Íslenska tipparanum sem átti tæpar 210 milljónir undir því að Liverpool ynni Bolton í ensku bikarkeppninni varð ekki að ósk sinni en liðin skildu jöfn 0-0. Hann hefði unnið um 210 milljónir króna með sigri Liverpool en hann fær þó þrjár milljónir í sinn hlut.

Hefði tipparinn náð 13 réttum þá hefði hann unnið tæpar 210 milljónir króna sem hefði verið hæsti vinningur sem unnist hefur í íslensku happdrætti, að því er kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Jafnteflið þýddi að hann var hins vegar með tólf rétta og fær í vinning rúmar 3 milljónir króna sem er þó huggun harmi gegn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert